Myndaleikur TM

27.05.2015

Myndaleikur TM mótsins í Eyjum.

 

Leikurinn felur í sér að hvert lið sendir inn skemmtilega mynd af hópnum. Þessi keppni á að efla liðsandann og hrista alla saman fyrir mótið. Við mælum við með því að gera mikið úr þessum leik á æfingu og leyfa börnunum að koma með hugmyndir að því hvernig myndin á að líta út.

 

Nánari upplýsingar;

1.   Hvert lið má senda eina mynd.

2.   Mynd má senda á postur@tm.is

4.   Skilafrestur mynda fyrir TM mótið er til 3.júní.

5.   Myndirnar birtast á facebooksíðu TM.

7.   Við val á bestu myndinni er farið eftir því hversu mikið hefur verið lagt í útfærslu, frumleika myndarinnar, einnig skipta „like“ á facebook máli en eru ekki algild. Dómnefnd mun því vinna krefjandi en skemmtilegt verk.

8.   Tilkynnt verður um verðlaunamyndina í lok dags 10.júní á facebooksíðu TM og verðlaun veitt á mótinu.

 

Verðlaunin eru út að borða og í bíó fyrir alla liðsmenn og þjálfara.

Við minnum einnig á #tmmotid fyrir þá sem verða duglegir að taka myndir á símann á mótinu.

Gangi ykkur vel!