Ábendingar til mótsgesta
12.06.2015Hér eru nokkrar ábendingar til mótsgesta, en þessi mál voru tekinn fyrir á farastjórafundinum í gær.
- Bílastæðamálin
- Bannað að leggja með Týsvelli – við bendum á bílastæði við Íþróttahúsið og Þórvöllinn sem og við skólana
- Höllin- hvetjum fólk til að nota bílastæðin fyrir neðan Höllina
- Þjálfarar og liðstjórar eru ekki að virða reglur varðandi hliðarlínu og box og er það eitthvað sem við getum bætt í dag.
- Landsleikur, skila inn tilnefningum fyrir hádegi á skrifstofu mótanefndar. Ef þið eigið góðan markmann þá vegið þið hann þyngra ef þið eruð í vafa.
- Ísland – Tékkland sýndur á Háaloftinu 18:45 á morgun
- vantar enn fimm fána
- Foreldra og farastjóraskemmtun í kvöld á Háaloftinu
- Sundlaugardiskó – einn fullorðinn á bakkanum fyrir hverja 15 stelpur
- myndataka á morgun fyrir liðin í salnum niðri í Týsheimiliu
- matur – að liðin mæti saman í mat, ekki í 3 manna hópum. Nauðsynlegt er að fararstjórar sem fylgja í mat séu með matarmiða
- Liðsmyndatökur í fyrsta gati á föstudag
- Skila nammimiðanum í dag föstudag