Myndakeppni og Hæfileikakeppni

23.05.2018

Myndakeppni TM verður með örlítið breyttu sniði í ár en undanfarið. Nú geta stelpurnar valið hvort þær vilja senda inn ljósmynd eða myndband, allar nánari upplýsingar er hægt að sjá hér.

 

Hæfileikakeppnin verður á sínum stað á miðvikudagskvöldinu og verður hún með sama sniði og í fyrra. Stelpurnar sína atriðið á miðvikudagskvöldi og úrslitin verða kynnt á fimmtudagskvöldi, allar nánari upplýsingar um keppnina er hægt að sjá hér.

 

Skil á mynd/myndbandi í myndakeppnina og undirspili í hæfileikakeppnina eru 4. júní, þannig að það er um að gera að fara að undirbúa stelpurnar.