Úrslit og landsleikur

14.06.2018

Þá er allt komið á fullt á öðrum keppnisdegi TM-Mótsins í Eyjum, bjart úti en aðeins meiri vindur en í gær. Við viljum minna ykkur á að fylgjast vel með skráðum úrslitum á síðunni og láta okkur vita á sigfus@ibv.is um leið ef þið sjáið ranga skráningu. Einnig viljum við minna á skilafrestinn varðandi landsliðstilnefningar til 13:00 í dag.