Bókanir í Herjólf byrja í dag

06.03.2019

Herjólfsferðir 2019

 

Mótsnefnd tekur frá fyrir keppendur, þjálfara og liðsstjóra (2 fullorðnir á hvert lið) í Herjólf. 

Auk þess eru tekin frá tvö bílapláss fyrir hvert félag.

Félögin skipa einn fulltrúa fyrir sitt félag sem er tengiliður við Herjólf og sér um öll samskipti við þau.

Tengiliðir félaganna senda póst á herjolfur@herjolfur.is  

Í póstinum þarf að koma fram:

TM Mót eða Orkumót:

Nafn félags:

Fjöldi barna (0-11 ára):

Fjöldi unglinga (12-15 ára):

Fjöldi fullorðinna:

Hvað þið ætlið að nýta mörg bílapláss 1, 2 eða ekkert og hvernig bíla þið eruð með:

 

Félögin greiða Herjólfskostnað, hann er ekki innifalinn í mótsgjaldi.

 

Plássið í Herjólfi er mjög eftirsótt og viljum við hvetja ykkur til að ítreka við foreldra að láta tengiliðinn ykkar vita ef þau ætla að taka barnið sitt með í aðrar ferðir. Plássið í skipinu skiptir miklu máli og ef Herjólfur er með nákvæma tölu frá ykkur þá komast fleiri að.

Þannig að ef fjöldatölur breytast þá þarf alltaf að láta Herjólf vita.

 

Hægt er að byrja að bóka og greiða fráteknu ferðirnar í dag 6. mars.

 

Þar sem nýjir rekstraraðilar taka við rekstri Herjólfs í lok mánaðar þá verða allir að vera búnir að ganga frá greiðslu 25. mars.

 

Ferðir sem við nýtum ekki fyrir keppendur, þjálfara og fararstjóra fara í sölu 13. mars kl. 9:00.