Mótsgjald 2019
07.05.2019Eindagi fyrir mótsgjald 19.500.- kr. sem greiðist fyrir hvern þátttakenda er 10. maí, eftir það hækkar gjaldið í 20.500.- kr.
Þátttakendur eru:
- Allir leikmenn
- Allir þjálfarar og fararstjórar sem gista og eða eru í mat á vegum TM Mótsins
- Í skýringu þarf að taka fram fyrir hvaða lið er greitt og fjölda stelpur/þjálfarar/fararstjórar dæmi: (KR 20+3+3)
Gerð er krafa um að greitt sé fyrir 2 fullorðna á fyrstu 2 liðin og svo 1 fullorðinn á hvert lið umfram það.
Athugið að þetta er lágmark!
Dæmi:
- Félag sem kemur með 1 lið borgar lágmark fyrir 2 fullorðna
- Félag sem kemur með 2 lið borgar lágmark fyrir 4 fullorðna
- Félag sem kemur með 3 lið borgar lágmark fyrir 5 fullorðna
- Félag sem kemur með 4 lið borgar lágmark fyrir 6 fullorðna
Mótsgjald greiðist inn á reikn. 185-26-401 kt. 680197-2029
Vinsamlegast sendið kvittun á sigfus@ibv.is
Einnig biðjum við ykkur um að senda fyrir 31. maí:
- Nafnalista liðsstjóra fyrir hvert lið ásamt gsm númeri
Þegar allir hafa greitt mótsgjaldið getum við farið að raða niður í gistirými. Stærð gistirýma miðast við þann fjölda sem greitt hefur verið fyrir hjá hverju félagi.
Einnig viljum við minna þá sem eiga eftir að ganga frá Herjólfsferðum að drífa í því með því að senda póst á herjolfur@herjolfur.is
ATH! Kostnaður við Herjólfsferðir er ekki innifalið í mótsgjaldinu. Við tökum aðeins frá pláss í skipinu til að allir komist til og frá Eyjum.