Rútuferðir
11.06.2019Rútuferðirnar verða með breyttu sniði í ár. Í staðin fyrir að fara í útsýnisferð um Eyjuna þá mun rúta ganga frá íþróttahúsi uppí Höll og þaðan niður Heiðarveg, inn Hásteinsveg og upp Illugagötu (sjá mynd, rauðu punktarnir eru stoppistöðvar). Hún mun svo einstaka sinnum lengja hringinn fyrir þá sem gista í Kviku, Listaskóla og Hvíta Húsinu.
Rútan mun fara þennan hring á sama tíma og matartímar eru í Höllinni. Þessar ferðir hefjast samt ekki fyrr en fimmtudag.