Þátttökugjald liða 2020
14.01.2020Nú er búið að senda út póst á forráðamenn félaganna með fjölda liða hvers félags.
Þátttökugjald 20.500 kr. fyrir hvert lið þarf að greiða í síðasta lagi 20. janúar. eftir það hækkar gjaldið í 22.500 kr. Ef ekki hefur verið greitt þátttökugjald fyrir lið 10 dögum eftir síðasta greiðsludag, fellur skráning liðsins niður.
Þátttökugjald greiðist inn á reikn. 185-26-401 kt. 680197-2029, senda kvittun á sigfus@ibv.is
Mótsgjald fyrir hvern keppanda þarf svo að greiða 4. apríl.
Þegar félögin hafa gengið frá greiðslu á þátttökugjaldi getum við byrjað að raða niður í Herjólfsferðir.
Herjólfsferðir fyrir þátttakendur á mótinu fara í sölu um miðjan febrúar og fyrir foreldra í byrjun mars.
Hægt er að skrá sig á póstlista hjá Herjólfi til að fylgjast betur með, með því að senda póst á herjolfur@herjolfur.is og setja TM Mótið í viðfangsefni.