Herjólfsferðir 2020

20.02.2020

Ferðaplanið með Herólfi er komið inn á heimasíðuna, hægt að skoða hér.

Mótsnefnd tekur frá fyrir keppendur, þjálfara og liðsstjóra (2 fullorðnir á hvert lið) í Herjólf. 

Auk þess eru tekin frá tvö bílapláss fyrir hvert félag.

Félögin skipa einn fulltrúa fyrir sitt félag sem er tengiliður við Herjólf og sér um öll samskipti við þau.

Tengiliðir félaganna senda póst á skrifstofa@herjolfur.is  

Í póstinum þarf að koma fram:

TM Mót eða Orkumót:

Nafn félags:

Fjöldi barna (0-11 ára):

Fjöldi unglinga (12-15 ára):

Fjöldi fullorðinna:

Hvað þið ætlið að nýta mörg bílapláss 1, 2 eða ekkert og hvernig bíla þið eruð með:

 

Félögin greiða Herjólfskostnað, hann er ekki innifalinn í mótsgjaldi.

 

Plássið í Herjólfi er mjög eftirsótt og viljum við hvetja ykkur til að ítreka við foreldra að láta tengiliðinn ykkar vita ef þau ætla að taka barnið sitt með í aðrar ferðir. Plássið í skipinu skiptir miklu máli og ef Herjólfur er með nákvæma tölu frá ykkur þá komast fleiri að.

Þannig að ef fjöldatölur breytast þá þarf alltaf að láta Herjólf vita.

 

Hægt er að byrja að bóka og greiða fráteknu ferðirnar frá 20. febrúar. Það þarf að vera búið að hafa samband við Herjólf og gefa upp loka fjöldatölur fyrir 8. mars.

 

Ferðir sem við nýtum ekki fyrir keppendur, þjálfara og fararstjóra fara í sölu 10. mars kl. 9:00.