Gisting félaga

29.05.2020

Hægt er að sjá gistiplanið fyrir mótið hér. Þar sem grunnskólanum er að ljúka 9. júní þá þurfum við að gefa kennurunum tækifæri á að ganga frá stofunum sínum og opna því grunnskólarnir kl. 13 miðvikud. 10. júní. Þeir sem koma með fyrstu ferðinni (kl. 10:45) gætu því þurft að hinkra aðeins áður en þeir komast inn í stofurnar.

Við erum að vinna að uppsetningu mótsins og munum við birta leiki fyrsta dagsins í næstu viku og í framhaldi tímasetningar á bátsferðum.

Nokkrar mikilvægar dagsetningar í næstu viku:

  • 1. júní – síðasti dagur til að láta vita hvort að þið þurfið skutl frá bryggju í gistingu við komu og öfugt við brottför – sendið á siggainga@ibv.is
  • 3. júní – síðasti dagur til að láta vita af fæðuóþoli/ofnæmi – sendið á siggainga@ibv.is
  • 4. júní – síðasti dagur til að skila inn undirspili fyrir hæfileikakeppnina, eða láta okkur vita hvernig atriðið ykkar verður ef ekki verður undirspil, einnig þeir sem ætla ekki að taka þátt þurfa að láta vita – sendið á arnar@ibv.is