Landsliðið - Pressan 4-6

12.06.2020

Landslið og Pressan léku á Hásteinsvelli í kvöld og náðu Landsliðsstelpurnar ekki að standast pressu Pressuliðsins. Stórskemmtilegum leik lauk með sigri þeirra síðarnefndu 4-6. Leikurinn var tilþrifamikill og stórskemmtilegur á að horfa. Mörk Landsliðisins skoruðu Elísabet Rut Sigurjónsdóttir ÍBV 2 og Fjóla Rut Zoega Hreiðarsdóttir Aftureldingu 2. Fyrir Pressuliðið skoruðu María Sól Mangnúsdóttir Fjölni 2, Arnfríður Auður Arnarsdóttir Gróttu 2, Véldís Ösp Einarsdóttir KFR og Birta Margrét Gestsdóttir Fylki.