Skráning hafin á TM Mótið 2021

24.11.2020

 

TM Mótið í Eyjum verður 10. - 12. júní 2021 (9. júní komudagur)

Mótið er fyrir stúlkur í 5. flokki - spilaður er 7 manna bolti

 

Að öllu óbreyttu verður TM Mótið 2021 með sambærilegu sniði og mótið 2020 m.t.t. covid, gera má ráð fyrir því að takmarka þurfi aðgengi fullorðinna í gistingu, mat og skemmtikvöld. Farið verður eftir því í einu og öllu hvaða reglur verða í gildi á þeim tíma sem mótið fer fram.

 

Opið verður fyrir umsóknir til og með 8. janúar 2021, vinsamlegast fyllið út þetta skjal til að sækja um.

 

Allar upplýsingar um mótsgjöld eru hér.

 

Sala á ferðum Herjólfs í kringum mótið hefst í lok febrúar.

 

Allar fyrirspurnir sendist á siggainga@ibv.is