Klara Elias leysir Bríet af á kvöldvökunni
10.06.2022Því miður þá kemst Bríet ekki á kvöldvökuna í kvöld, hún ætlaði að fljúga heim erlendis frá í morgun en búið er að seinka fluginu hennar það mikið að hún nær ekki að koma til Eyja í tæka tíð.
Klara Elias ætlar að hlaupa í skarðið, Klara var áður hluti af söngflokknum Nylon og núna nýlega var frumflutt eftir hana Þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja 2022.
Okkur þykir þetta ákaflega leitt en við þetta verður því miður ekki ráðið.