Klara Elias leysir Bríet af á kvöldvökunni

10.06.2022

Því miður þá kemst Bríet ekki á kvöldvökuna í kvöld, hún ætlaði að fljúga heim erlendis frá í morgun en búið er að seinka fluginu hennar það mikið að hún nær ekki að koma til Eyja í tæka tíð.

Klara Elias ætlar að hlaupa í skarðið, Klara var áður hluti af söngflokknum Nylon og núna nýlega var frumflutt eftir hana Þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja 2022.

Okkur þykir þetta ákaflega leitt en við þetta verður því miður ekki ráðið.