Sundlaugin - bókanir

13.06.2023

Núna er hægt að bóka félögin í sund á noona.is búið er að opna fyrir miðvikudag, hægt verður að bóka 1 dag fram í tímann - hægt verður að bóka fyrir fimmtudag á miðvikudag.

Setja þarf nafn liðs í reitinn sem vanalega er fyrir nafn þess sem bókar.

Hvert lið hefur 40 mín frá því að hleypt er inn í klefa og þangað til þau þurfa að vera komin upp úr lauginni. Mikilvægt er að mæta á réttum tíma, þar sem tíminn telur frá bókaða tímanum. Tilkynna þarf komu sína í afgreiðslu og fá úthlutuðum klefa. Innifalið í mótsgjaldi er 3x sund, þegar keppendur koma með liðinu, sýna þarf armband í afgreiðslu.