Jafningjaleikir TM 2023

17.06.2023

Eftir riðlakeppni morgunsins er farið í jafningja leiki, raðað er í þá eftir að öll úrslit eru staðfest úr riðlakeppni morgunsins.

Gott er að hafa í huga að þau lið sem lenda í 4. sæti síns riðils þurfa að keppa fyrsta leik eftir hádegi (það geta verið örfáar undantekningar á þessu).

3. sætið leikur svo á eftir 4. sætunum og koll af kolli fram að úrslitaleikunum á Hásteinsvelli kl. 17:00 

Fyrstu jafningjaleikir hefjast eftir matarhlé klukkan 15:00.