Stórskemmtilegum landsleikjum lokið með sigri pressunar 6-4.

14.06.2024

Landsliðin og pressuliðin áttust við á Hásteinsvelli í kvöld. Vegna fjölda leikmanna eru leiknir tveir leikir samhliða en mörkin telja saman, Pressan byrjaði með látum skoruðu tvö mörk með stuttu millibili en landsliðið var fljótt að jafna sig og leikinn í 2-2 og þannig stóð í hálfleik. Pressuliðið var síðan sterkari aðillinn í síðari hálfleik þar sem þær skoruðu 4 sinnum en landsliðið 2 lokatölur því 6-4. Þrátt fyrir mörg mörk var markvaslan í leikjunum oft á tíðum eftirtekarverð vegna gæða. Markaskorar í leiknum: Fyrir landsliðið Valdís Silja Daðadóttir FH 1, Ísabella Björt Ingibjörnsdóttir FH 1, Hanna Guðrún Ingólfsdóttir Víkingi R. 1. og Saga Pála Guðjónsdóttir Aftureldingu 1. Fyrir pressuliðið skoruðu Rakel Inga Ágústsdóttir RKVN 2, Þórdís Eva Sigurðardóttir Breiðabliki 1, Agnes Lóa Sæmundsdóttir KR 1, Thelma Lind Heimisdóttir Stjarnan 1 og Steinunn Harpa Heimisdóttir KA 1.