Gisting 2025
03.06.2025Hér er hægt að sjá gistiplanið og upplýsingar um gististaði.
Barnaskóli og Hamarsskóli eru hnetulausir v/bráðaofnæmis.
Kæligámar verða fyrir utan Barnaskóla og Hamarsskóla. Hægt verður að gefa nesti t.d. grilla samlokur í sameiginlegum rýmum.
Minnum á að flokka hreinan pappa og lífrænt rusl frá almennu rusli á gististöðum.
Til að geta tekið á móti öllum félögum sem vilja komast á mótið, þá er þröngt í gistingu og nauðsynlegt að allir komi með einbreiðar dýnur.





