Gisting 2026
03.06.2026Hér er hægt að sjá gistiplanið og upplýsingar um gististaði - vinsamlegast lesið vel yfir.
Skólarnir opna kl. 14:00 - en keppendur sem koma með 10:45 ferðinni mega fara inn með farangurinn sinn, og koma svo aftur kl. 14:00 til að koma sér fyrir.
Vinsamlegast virðið þetta, við verðum að gefa kennurunum tíma til að ganga frá stofunum sínum!
Í Barnaskólanum eru keppendur með bráðaofnæmi fyrir hnetum og eggjum.
Í Hamarsskóla eru keppendur með bráðaofnæmi fyrir hnetum og kókos.
Kæligámar verða fyrir utan Barnaskóla og Hamarsskóla. Hægt verður að gefa nesti t.d. grilla samlokur í sameiginlegum rýmum.
Minnum á að flokka hreinan pappa og lífrænt rusl frá almennu rusli á gististöðum.
Til að geta tekið á móti öllum félögum sem vilja komast á mótið, þá er þröngt í gistingu og nauðsynlegt að allir komi með einbreiðar dýnur.





