Landsleikjum TM-mótsins 2026 lokið

12.06.2026

Það var líf og fjör í sólinni á Hásteinsvelli í kvöld þegar landsliðin og pressuliðin öttu kappi, liðin skiptust á að hafa forystuna en leikar enduðu þó 7-4 fyrir Pressuna. Mörg glæsileg tilþrif sáust bæði úti á vellinum sem og hjá markvörðunum. Markaskorar í leiknum, fyrir Pressuliðið Andrea Sif Meta Breiðabliki 2, Elísa Dagný Guðmundsdóttir Þór Ak. 2, og eitt mark þær Álfheiður SIlla Heiðarsdóttir  KFR, Salka Víðisdóttir Stjörnunni og Jóhanna Lilja Vignisdóttir Fjölni. Fyrir Landsliðið skoruðu Rannveig Kara Helgadóttir Tindastóli, Valgerður Dagný Guðjónsdóttir Aftureldingu, Ágústa Embla Thygsen Gróttu og Friðbjört Mía Ívarsdóttir Hamri/Ægi. Stelpurnar sem tóku þátt í leiknum komu inn á völlinn í bolum til stuðnings tveimur ungum stúlkum sem hafa barist við erfiða sjúkdóma og tengjast TM mótinu sterkum böndum þær Guðbjörg Silla Viðarsdóttir og Kolfinna Rán Færseth. Þær stelpur fá bestu stuðningskveðjur frá öllum á TM-mótinu.