Þróttur R. TM-móts meistari 2026

13.06.2026

Þá er það ljóst að Þróttur frá Reykjavík er sigurvegari TM-mótsins í Eyjum árið 2026. Þær sigruðu Aftureldingu 3-0 mörkin gerði Aníta Eir Vilmarsdóttir, Alexandra Lyngberg Andradóttir, Unnur Ebba Birgisdóttir og Una G. Brynjudóttir Valsdóttir. Þróttur lék við hvurn sinn fingur í úrslitaleiknum sem og mótinu öllu. Afturelding átti mjög gott mót þó þær hafi átt á brattann að sækja í sjálfum úrslitaleiknum. Um leið og við þökkum gestum TM-mótsins fyrir komuna og þátttökuna, þá óskum við þess að allir fari með sólskinsbros á vör og með góðar minningar til síns heima. Hinu ýmsu úrslit og upplýsingar má nálgast hér á síðu TM-mótsins.