FH vann hæfileikakeppnina og rífandi stemmning hjá Jóni Jónssyni á kvöldvökunni
17.06.2023Það var rífandi stemmning þegar Jón Jónsson steig á stokk á kvöldvökunni í gærkvöldi og tók nýja mótslagið okkar "Fótbolti út í Eyjum". Það var greinilegt að stelpurnar voru búnar að vinna heimavinnuna sína og læra textann því þær sungu allar með.
Áður en Jón steig á svið voru veitt verðlaun fyrir hæfileikakeppnina, dómararnir áttu erfitt með að gera upp á milli atriða þar sem þau voru öll svo flott og greinilegt að stelpurnar hafa lagt mikinn metnað í atriðin. En eftirfarandi hlutu viðurkenningar:
1. sæti FH
Kraftur og öryggi einkenndi atriði FH og bauð það upp á húmor, gleði, bolta og frábæran dans. Atriði sem hafði allt og eru þær verðugur sigurvegari í ár.
2. sæti Breiðablik
Fjölbreytni skein í gegn í atriði Blika og fengu mörg listform að njóta sín. Þrátt fyrir fjölbreytnina var atriðið heilsteypt og virkilega flott.
3. sæti RKV
Þetta atriði bauð jafnvel uppá flottasta dansinn í ár. Það var mikið um að vera í atriðinu, oft jafnvel þrjár grúbbur í einu, en atriðið hélt samt mjög vel og var heilsteypt og laust við kaótík. Mjög vel gert.
Frumlegasta atriðið: Selfoss
Ótrúlega skemmtilegt atriði þar sem texti fékk dómnefnd til að skella upp úr og þemað naut sín mjög vel. Þetta skemmtilega atriði myndi sóma sér á 17. júní dagskrá um land allt.