ÍR vann hæfileikakeppnina - Tónhylur á kvöldvöku

12.06.2026

Tónhylur tróðu upp á kvöldvökunni við mikinn fögnuð og náðu upp þvílíkri stemmningu þar sem stelpurnar sungu og dönsuðu með.

En kvöldvakan hófst með því að veitt voru verðlaun fyrir hæfileikakeppnina, dómararnir áttu erfitt með að gera upp á milli atriða þar sem þau voru öll svo flott og greinilegt að stelpurnar hafa lagt mikinn metnað í atriðin. En eftirfarandi hlutu viðurkenningar:

 

1. Sæti - ÍR

Atriði sem hafði allt. Frábær húmor í upphafi, vel farið með þemað og kraftmikið og metnaðarfullt atriði í alla staði. Besta atriðið í ár.

 

2. Sæti - Fram

Mjög vel farið með þemað í atriðinu. Dansinn virkilega flottur og mikið um að vera í atriðinu.

 

3. Sæti - ÍA

Flottur texti við lag sem passaði vel. Dansinn frábær og vel farið með þema.

 

Besta stuðningsatriðið: KR

Virkilega vel farið með þemað og gaman að Ísland hafi verið liðið sem KR stelpurnar voru að hylla. Sniðug byrjun með vítaspyrnuna og svo hélt flott atriði áfram. Besta stuðningsatriðið fellur því til KR.

 

Frumlegasta atriðið: Skallagrímur

Á þeim tæplega 10 árum sem þessi dómnefnd hefur starfað saman höfum við aldrei séð svona atriði. Grímurnar geggjaðar, þemað klárlega til staðar og svo var atriðið ekki bara eitthvað sprell, heldur virkilega flott. Lang frumlegasta atriðið í ár, og síðustu ár ef út í það er farið.