TM-mótið í Eyjum laugardagur 13.6.2026
13.06.2026Í dag hefja stelpurnar leik aðeins fyrr en hina dagana, einnig eru leikir aðeins styttri eða 12 mínútur hvor hálfleikur. Mikilvægt er að allt gangi hratt og vel fyrir sig, þar sem skammur tími er til að raða upp jafningjaleikjum eftir matarhlé. Við viljum minna á að allir aðrir en þeir sem keppa hverju sinni eiga að vera utan girðingar við Hásteinsvöll og vel frá öðrum völlum.
Ef þið sjáið eitthvað athugavert við úrslitaskráningu, látið okkur endilega vita straks á sigfus@ibv.is eða í síma 481-2060(2)





